Ný íslensk tölvurödd
Les hvaða texta sem er á netinu

365 þúsund sinnum

Vefþulan hefur nú verið í gangi í rúma 6 mánuði.

Á þeim tíma hefur hún hafið upp raust sína og lesið einhvern texta 365 þúsund sinnum.

Hún les hvern texta bara einu sinni, því eftir það er hann geymdur í upplestrarsafni Vefþulunnar og spilaður þaðan ef einhver vill hlusta á sama texta aftur.

Hver frétt sem sett er inn á mbl.is er nú lesin af Vefþulunni, en eftir það er greinin bara spiluð. Þannig er hlustun á upplestur Vefþulunnar umtalsvert meiri en þau 2000 skipti á dag sem hún les eitthvað sjálf.

Námsmenn eru greinilega að nýta sér Vefþuluna, bæði til aðstoðar við upplestur og ritunar, því við sjáum greinilega aukna notkun í kring um prófatímabilin tvö sem liðið hafa hjá frá því Vefþulan var sett af stað.

Vefþulan las t.d. 27.592 sinnum í mars en rauk upp í 41.073 upplestra í apríl og 36.586 lestra í maí. Það sem af er júní hefur hún lesið 18.511 sinnum.

 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Thu, 19 Jun 2008 11:00

Vefþulan á MBL.is

Vefþulan hefur nú tekið til við að lesa hverja einustu frétt á mbl.is.

Sjá nánar hér.

Það þarf náttúrulega ekki að taka það fram hversu ánægðir aðstandendur Vefþulunnar eru með þennan áfanga. Alltaf gaman þegar börnin manns komast til manns og fara að lesa Moggann.

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Fri, 13 Jun 2008 17:17

Vefþulan vöknuð á ný

Uppfærslu er lokið í bili og Vefþulan fjasar nú endalaust og botnlaust um hvaðeina sem hún er beðin um að tjá sig um.
Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Mon, 10 Mar 2008 16:48

Vefþulan lokuð í dag vegna uppfærslu

Vegna uppfærslu á vélbúnaði, stýrikerfi og hugbúnaðarleyfum verður Vefþulan lokuð í dag, mánudaginn 10. mars.
Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Mon, 10 Mar 2008 10:40

Nýtt viðmót fyrir innfellda Vefþulu

Núna raðast inn vefir sem gert hafa samning um að fella Vefþuluna inn hjá sér, þannig að hægt sé að smella á hnapp og fá fréttir, greinar og pistla lesna beint.

Það er komið nýtt viðmót fyrir tæknilega innleiðslu.

Nánari upplýsingar

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Wed, 20 Feb 2008 11:43

Vefþulan les nú á mp3 formi

Glöggir notendur hafa kannski tekið eftir því að búið er að skipta um form á hljóðskrám sem Vefþulan skilar. Þær voru á WAV formi en eru nú ríflega helmingi minni og á mp3 formi.

Það minnkar álagið á netsamband verulega, hljóðskráin ætti að vera fljótari í niðurhali og hljóðið ætti jafnvel að vera ögn betra en það var.

Auk þess gefur það okkur tækifæri til að leika okkur meira með það, eins og t.d. að útbúa hringitóna. 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Wed, 20 Feb 2008 11:40

Vefþulan er hætt í óstuði

Blessunin er farin að makka rétt aftur.

Fyrir áhugamenn um tæknina þá ákvað einn netþjónanna að keyra á öðru stafasetti en hinir, sem varð til þess að allt sem Vefþulan fékk til að lesa var tvíenkóðað og þar af leiðandi hreint bull. 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Wed, 5 Dec 2007 11:26

Langir textar í Vefþulunni

Við sjáum af og til að einhver reynir að senda mjög langa texta til lestrar í Vefþulunni.

Hún ræður reyndar við ótrúlega langa texta, svona af vefþjónustu að vera, en hins vegar getur það tekið mjög langan tíma að búa hljóðið til. Jafnvel svo mælist í mínútum.

Það væri því marktækt þægilegra - fyrir okkur og þann sem vill fá langan texta lesinn - að gera þetta í bútum. 

Við komum til með að setja hámarkslengd á texta um leið og við erum búin að finna hver mörkin þurfa að vera. 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Mon, 26 Nov 2007 18:14

Vefþulan lokuð milli 6 og 7 í kvöld

Við ætlum að uppfæra Vefþuluna klukkan 18:00 í kvöld. Gerum svo sem ekki ráð fyrir að það taki langan tíma, en hún verður óvirk á meðan.

Látum vita hér þegar hún verður komin í gang aftur.

Uppfært 19:52 Við sáum að það voru nokkuð margir orðnir óþolinmóðir - en Vefþulan er komin upp aftur. Spurning með að fara að fá sér í gogginn.

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Sat, 24 Nov 2007 19:53

Guðfeður Röggu

Tölvuröddin sem Vefþulan notar fyrir íslensku heitir Ragga.

Það eru tveir menn sem sannanlega eiga þann heiður skilinn að kallast guðfeður Röggu. Það eru þeir Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor hjá Háskóla Íslands og Sæmundur Þorsteinsson, gúrú rannsókna- og þróunardeildar Símans.

Þeir lögðu báðir á sig ómælda vinnu og leystu úr alls kyns vandamálum, bæði fyrir og á meðgöngutíma Röggu. 

Án þeirra væri engin Ragga og engin Vefþula. 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Thu, 22 Nov 2007 17:45

Smátafir á Vefþulunni út af aula

Eins og alltaf þá er ekki hægt að hafa nokkurn skapaðan hlut opinn á netinu fyrir því sem kalla má skriftukjána.

Einhver lúði er að láta skriftu demba random tölu kóða á viðmótið, sem tefur fyrir alvöru notendum. Við erum að blokkera hann, tekur smá stund í viðbót.

Öppdeit: Erum búin að blokkera hann - í bili að minnsta kosti.

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Wed, 21 Nov 2007 22:45

Lögfræðingarnir vinna - grömm gegn grein

Við erum búin að breyta sjálfgefnu gildi fyrir skammstöfunina gr. úr grömm í grein.

Það var gert vegna mikils magns lagatexta og reglugerða sem við sáum renna í gegn - og lítils magns uppskrifta.

Ef einhver lendir í því að fá fyrirmæli um að nota 28 greinar af vanillu í eitthvað, þá verður viðkomandi bara að hugsa til Hérastubbs bakara. 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Wed, 28 Nov 2007 22:30

Maður á gröfu lokaði Vefþulunni

Það varð smá rof á Vefþulunni rétt í þessu.

Ástæðan var ljósleiðarabilun einhvers staðar úti í sveit.

Vefþulan hefur hafið lestur að nýju. 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Wed, 21 Nov 2007 14:05

Hljóðskrám verður eytt

Við höfum orðið vör við það að fólk er farið að vísa beint í hljóðskrárnar sem Vefþulan býr til, m.a. í bloggfærslum.

Það er ákveðin hætta fólgin í því, því við munum eyða hljóðskrám reglulega ef þær hafa ekki verið notaðar í gegn um Vefþuluna.

Þannig að ef þú býrð til hljóðskrá sem þú vilt eiga og nota áfram, þá er skynsamlegt að vista hana og setja á "öruggan stað" (þú veist, við hliðina á lyklunum að geymslunni og bréfinu frá skattinum með veflyklinum).

Almennt stefnum við að því að geyma skrárnar í mánuð umfram síðustu notkun í Vefþulunni. 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Wed, 21 Nov 2007 09:38

Hefnd þulunnar - olof.blog.is

Hefnd þulunnar - olof.blog.is
Ég náði mér niðri á sjálfvirku netþýðingarvélunum sem snúa alveg hrikalega út úr íslenskunni þegar ég lét Röggu vefþulu lesa enskan texta. Þá hljómaði hún eins og íslenskur ráðherra á alþjóðafundi.
Þetta skemmti okkur :)
Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Wed, 28 Nov 2007 22:30

Opnist í nýjum glugga

Okkur barst beiðni um að útbúa nýjan Lestu þetta tengil sem opnar síðuna í nýjum glugga.

Vessgú: Lestu þetta (nýr gluggi)

Sömu leiðbeiningar gilda.

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Sun, 18 Nov 2007 17:27

Hvernig hangir Vefþulan saman?

Við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir um það hvernig þetta hangi allt saman tæknilega séð og finnst því rétt að útskýra það í stuttu máli.

Vefþulan er vefþjónusta. Forsíðan á henni og allt viðmót keyrir á Java miðlara sem aftur keyrir á Linux vefþjóni með Apache.

Þegar einhver biður um lestur á einhverjum texta er hann sendur á gáttarmiðlara sem situr á eldveggnum hjá okkur. Hann tekur við textanum og hefur samband við talþjónustuna sjálfa, sem situr innan eldveggjar. Hún keyrir á Java þjóni á Windows vél og notar Microsoft Speech API (SAPI5) til að keyra tölvuröddina Röggu. Sú vél býr til hljóðskrána og skilar gáttamiðlaranum heitinu á skránni. Hann skilar síðan Vefþulunni slóðinni á skrána til spilunar.

Með þessu náum við að stýra álaginu og getum sett fleiri gáttarmiðlara og fleiri talþjóna í umferð ef þurfa þykir. 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Sun, 18 Nov 2007 15:31

Um grömm og greinar

Vefþulan getur brugðist mismunandi við eftir samhengi.

Til að mynda þá er vafamál hvernig hún á að bera fram gr.

Stundum er gr. grein en yfirleitt er gr. gramm, þó að gramm sé réttilega skammstafað g.

Við tókum því þá ákvörðun að láta grammið ráða - nema beiðnin um lestur komi frá vef sem skilgreindur er sem lagavefur. Þá er gr. grein. 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Sun, 18 Nov 2007 15:01

Erlend tungumál og Vefþulan

Á næstunni munu nokkur erlend tungumál bætast við Vefþuluna. Við erum ennþá að semja um afnotarétt á þeim, fengum leyfi til að nota Röggu á netinu af því að við bjuggum hana til, en önnur tungumál eða öllu heldur aðrar raddir þarf að semja sérstaklega um.

En við sjáum ekki fram á annað en að samningar náist á allra næstu dögum og þá bætist heill kór af röddum við Vefþuluna til viðbótar við Röggu. 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Sun, 18 Nov 2007 14:50

Vá, við höfum aldrei séð annað eins

Akkúrat í augnablikinu er staðan sú að ef við sjáum Vefþuluna þagna er eitthvað bilað.

Að meðaltali koma inn 2 beiðnir á sekúndu um lestur, sem er verulegt álag, sérstaklega á splunkunýja græju.

Ef svo heldur fram sem horfir þurfum við að hlaupa út í tölvubúð í fyrramálið og kaupa fleiri netþjóna. 

Vefþulan - Spurningar og svör
Said Vefþulan - Spurningar og svör
Sun, 18 Nov 2007 14:36

first << prev | Pages : 1 2 | next >> last